Dagur 1 – tiltekt

Þetta er tilvalinn dagurinn til að byrja sjö daga verkefni. Vegna þess að þú ætlar ekki að láta veðrið, börnin, vinina eða bara eitthvað annað trufla þig í að gera stutta verkfeni dagsins.

Mundu að rauði púkinn á öxlinni mun reyna halda þér niðri eins og hann getur. Hann mun segja þér að þetta sé tilgangslaust, vitlaust og algjör þvæla. Þú ræður hvort þú hlustar á hann – já! ÞÚ ræður.

Verkefni dagsins:

Náðu í skál eða box. Taktu ALLT uppúr vösunum á úlpunni þinni, vinnuúlpu, handtösku, skólatösku eða hvað annað sem þú notar dags daglega og settu þetta allt í box. Tæmdu alla vasa af þínum dagsdaglegu fötum.

Týndu svo uppúr það sem þú þarft að hafa á þér og settu það aftur í vasann/töskuna.

Þú ræður hvort þú hendir restinni eða leyfir því að bíða í boxinu í nokkra daga – mögulega þarftu að nota eitthvað fleira af þessu. Sennilega getur þú hent mörgu.

Ástæðan fyrir þessu verkefni

Við erum oft með fullt af dóti á okkur – strimla úr búðum eða eitthvað sem við þurfum ekki að ganga með á hverjum degi. Þetta dót er fyrir okkur og truflar okkur án þess að við vitum af því. Þess vegna er gott að taka til í öllum vösum/töskum.

Til hamingju – þú kláraðir eitt verkefni í dag 🙂

Deildu mynd inná Instagram undir #sjödagatiltekt

– Elín Káradóttir –

 

 

4 athugasemdir við “Dagur 1 – tiltekt

  1. Bakvísun: Dagur 3 – tiltekt – Elín Kára

  2. Bakvísun: Dagur 2 – tiltekt – Elín Kára

  3. Bakvísun: Dagur 4 – tiltekt – Elín Kára

  4. Bakvísun: Dagur 5 – tiltekt – Elín Kára

Lokað er á athugasemdir.