Jább, ég er nennari. Ég nenni að gera hluti og hafa fyrir hlutunum. Svo kem ég mörgum af mínum hugmyndum í framkvæmd. Þess vegna er ég “nennari”.
Þegar maður spyr fólk af hverju það kláraði ekki skólann, þá er svarið iðulega: “æji, ég nennti því ekki”.
Hvernig stendur á því að þú ert ekki búin að ná af þér öllum þessum kílóum eins og þú talaðir um hérna fyrir nokkrum mánuðum síðan? “Æji, ég nennti því ekki”.